Sigló túttur og töffarar
31.03.2009 23:16:08 / siglo71

Til hamingju með 24 ára fermingarafmælið:)

Tíminn er aldeilis fljótur að líða - núna komin 24 ár frá fermingu:lol:
Kær kveðja
Gréta

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.04.2008 22:07:31 / siglo71

Til hamingju með 23 ára fermingarafmælið !

Þetta er ekkert aprílgabb, en þið áttuð 23 ára fermingarafmæli í gær 31. mars.
Til hamingju með það - unglingarnir ykkar !
Kveðja Gréta

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.02.2008 13:16:54 / siglo71

Sólon

Hittingur á Sólon annað kvöld, 21. febrúar, kl. 19.30.  Þar er hægt að fá sér litla og stóra rétti á góðu verði. 

Magga Dís er á landinu og ætlar að mæta;-)  Auðvitað langar hana til að hitta okkur sem flest:lol:

Sjáumst vonandi sem flest, Elva.

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.01.2008 16:29:28 / siglo71

Jæja þá

Gleðilegt ár öllsömul

Hvað er að frétta af ykkur? Hvað segið þið um við gerum aðra tilraum með að hittast annað hvort einhverstaðar á kaffi eða veitingahúsi, svo get ég líka boðið ykkur heim endilega allir að kvitta.

 

kveðja

Árný 


» 8 hafa sagt sína skoðun

10.12.2007 19:59:24 / siglo71

Jólin á næsta leyti

Sæl öll

Lítið hefur verið að gerast undanfaið á þessari síðu, utan heillaóska til einstaklinga innan hópsins og afboðunar á hittingum. Mér fannst því tilvalið að koma með jólakomment hér inn í tilefni af komu jólanna. Á mínu heimili eru flestar jólagjafir komnar í hús og því ekkert stress fyrir utan jólapakka sem ég á eftir að senda til Portúgals, Mexíco og USA. Það er svo skrítið hvernig hlutirnir þróast en ég hef aldrei áður sent jólagjafir né jólakort út fyrir eyjuna okkar en svo allt í einu er fólk farið að dreifa sér út um alla heimsbyggðina... Hugsa að á endanum verði sendingarkostnaðurinn meiri en sjálfar jólagjafirnar sem fólkið fær:(

Eins og flest ykkar vita þá fjölgaði í fjölskyldunni okkar, nánar tiltekið 9. september sl. og var daman okkar því 3 mánaða í gær. Hún er alveg ótrúlega falleg (eins og mamman), geðgóð (eins og mamman) og róleg (eins og mamman). Við skírðum hana þann 18 nóvember sl. því mikla og fallega nafni Sigríður Hrafnhildur (í höfuðið á okkur Siggu Dóru :lol:)

Nei kannski ekki alveg þar sem tengdamóðir mín heitin hét þessu nafni og var hún einnig Stefánsdóttir svo hún hefur nú fengið alnöfnu, blessuð sé minning þeirrar yndislegu konu.

Í ár gerði ég nokkuð sem ég hef aldrei gert og alltaf séð eftir að hafa ekki gert en það er að versla af SÁÁ pakka sem jólasveinninn getur sótt í ýmislegt þegar kemur að því að gefa þægum börnum í skóinn. Þar gefur á að líta ýmislegt spennandi fyrir 8 ára stráka s.s. vatnasnák, seguldót, ljónatattú, límmiðabók með 372 límmiðum af David, Victoriu Beckham og líklega er þetta elsti sonur þeirra hjóna þarna með þeim líka, tunnuslím og svo eitthvað í gulri kúlu sem stendur á Winnie the pooh, Animal Wear Special Edition (11 to collect svo líklega  þarf að versla annann svona kassa að ári til að fá þá alla), námuljós og rattlesnake egg. Einnig er að finna í kasanum bók eftir Madonnu sem heitir Eplin hans Peabodys. Ég vona bara að drengurinn verður sáttur með eitthvað af þessu en ég veit að jólasveinninum er létt:D

Búið er að semja við unglingin á heimilinu um að ekkert verði af skógjöfum í ár og litla stýrið hefur ekki enn vit á því að taka þátt í æsingnum...

Jæja þá er litla ljósið mitt að kalla á mig að koma og taka sig af leikteppinu, enda orðin leið á að toga í eyrað á fílnum sem brakar svo skemmtilega í.

Munið bara elskurnar mína að gleyma ekki boðskap jólanna í öllu stressinu. Ég óska ykkur gleðilegra jóla og farsælt nýs árs. Megi jólabarnið sem við öll geymum einhversstaðar innra með okkur fá að njóta sín yfir hátíðarnar.

Ykkar Hrafnhildur, gamli jólasveinninn:haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.11.2007 15:06:51 / siglo71

Líney á afmæli í dag !!!

Hún á afmæli í dag

hún á afmæli í dag

hún á afmæli hún Líney

hún á afmæli í dag

 

Mér fannst tilvalið að vekja svolitla athygli á þessum merka degi :lol:

Kv. Gréta


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.11.2007 12:39:20 / siglo71

Frestun

Jæja,

 Vegna lélegrar þátttöku hefur "nefndin" ákveðið að fresta hittingnum sem vera átti í kvöld.  Ný tímasetning verður send við tækifæri.  Gaman væri að fá betri undirtektir þá.

 Með kveðju, Elva.


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.11.2007 14:46:34 / siglo71

Ruby Tuesday á morgun kl. 18:30

Sælt veri fólkið

"Nefndin" hefur ákveðið að hittast á Ruby Tuesday á höfðanum kl. 18:30, fimmtdaginn 8. nóvember (þ.e. á morgun8))

 Búið er að panta borð fyrir 8 manns á mínu nafni svo ef ég verð ekki komin þá þykist þið bara vera ég :lol:

Gaman væri að sem flestir sjái sér fært að mæta

 

Hlakka til að sjá ykkur;)

 

Hrafnhildur

 

:):o:lol::|:S8):D:(;)8|:!::cry::evil::$:klikk::whut::haha::P:^):frown:

 

ps. flottir þessir kallar


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.10.2007 10:47:40 / siglo71

Næsti hittingur

Hæ aftur!

Klaufinn ég:S  Ég var að fatta að það eru vetrarfrí í flestum skólum (a.m.k. í Reykjavík) þann 1. nóvember og því kannski margir sem fara úr bænum (m.a. ég;) ).  Ætla því að stinga upp á fimmtudeginum 8. nóvember í staðinn.  Vonast eftir betri undirtektum:)

Kveðja, Elva.


» 15 hafa sagt sína skoðun

10.10.2007 09:54:24 / siglo71

Kaffihús? Heimahús?

Jæja sælt veri fólkið!

 

Er ekki málið að hittast fljótlega á kaffihúsi eða í heimahúsi?  Ég ætla að stinga upp á t.d. fimmtudagskvöldinu 1. nóvember.  Hvað segið þið um það?

 

Kv. Elva.


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.09.2007 00:21:26 / siglo71

Mynd af Ragnhildi !

Fyrir þau ykkar sem ekki hafið séð Ragnhildi lengi, þá er tækifæri til að "rifja upp útlit hennar" hér á myndasíðunni.  Ég held að hún verði unglegri með hverju árinu !  Við Ragnhildur hittumst í Kaupmannahöfn og fórum út að borða saman ásamt fleiri stelpum (saumaklúbbssystrum okkar).

Kveðja frá Grétu prakkara

P.S.  Eigum við að stefna á hitting í október ?


» 8 hafa sagt sína skoðun

10.08.2007 10:07:34 / siglo71

Stuð og meira stuð

Hrikalega gaman að sjá myndirnar frá bekkjarmótinu og greinilegt að það hefur verið rífandi stuð hjá ykkur, gömlu danstaktarnir hafa fengið að njóta sín og meira að segja leðurjakkinn hennar Fríðu á lífi enn þá, tær snilld.  Gaman líka að sjá hvað árin hafa farið vel með okkur ÖLL:haha:

Það er nokkuð ljós að ég mun ekki láta svona snilldar hitting fara fram hjá mér aftur og tilkynni hér með að ég er búin að taka frá allar helgar sumarið 2011 til að missa nú alveg örugglega ekki af neinu. 

Set stefnuna á að mæta á næsta borgarhitting og heyra sögurnar ásamt því að snúa upp á handleggi og fótleggi til að komast yfir sönglagatextann um þau okkar sem ekki mættu!

Hafið það sem best.
Kv. Elín


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.08.2007 17:56:51 / siglo71

Myndir

Sæl öll og takk fyrir síðast 8)

Ég var að setja inn nokkrar af myndunum sem Siggi Ingi tók saman fyrir laugardagskvöldið.  Náði ekki að setja allar inn en klára seinna í dag, sem og þær myndir sem ég tók um helgina.

Kveðja,

Sigga Dóra


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.07.2007 23:57:20 / siglo71

Takk fyrir síðast og nýjar myndir !

Sæl og blessuð öll og takk kærlega fyrir síðast !!

Ég keyrði til Reykjavíkur í dag, því það var ekki hægt að yfirgefa Siglufjörð í gær vegna veðurs, það var svo mikil bongóblíða.  Að sjálfsögðu var mitt fyrsta verk við heimkomuna að hlaða inn myndum til að setja á síðuna okkar.  Setti inn myndir í 3 albúm (föstudagskvöld, laugardagur og laugardagskvöld) og bíð spennt eftir að þið bætið við ykkar myndum !

Alls mættu 19 manns úr árgangnum á bekkjarmótið.  Helgin var mjög velheppnuð, á föstudagskvöldinu stóðu strákarnir sig eins og hetjur við grillið á Hóli, svo var þar spjallað og spurt, hlegið, skoðaðar gamlar myndir, farið með klámvísur, dansað og skúrað!  Á laugardaginn lék veðrið við okkur í skógræktinni (þó það hafi eitthvað verið skýjað í höfðinu á sumum) og börn og fullorðnir skemmtu sér vel.  Laugardagskvöldið var svo ljómandi fínt, fordrykkur hjá Stínu og Tóta, kvöldverður á Bíó Café og svo frábær innlegg sem Siggi Ingi, Fríða og Jói áttu mestan heiður af.  Myndir frá skólaárunum voru sýndar á stóru tjaldi og tónlist frá sama tíma hljómaði undir, sýnt var myndband frá litlu jólum í Gagganum og svo sungum við saman sérsaminn texta um fjarstadda árgangsmeðlimi við lagið Anna Lára, Bryndís, Bára...   Að lokum var svo ball með Tröllaskagahraðlestinni!  Hljómsveitin var mjög góð og við höfðum dansgólfið út af fyrir okkur, en höfum það í huga fyrir næsta árgangsmót að ef við viljum hafa fleira fólk í kringum okkur þá veljum við ekki helgina fyrir Verslunarmannahelgi!

Hugmyndin er að næsta árgangsmót verði árið 2011, árið sem við verðum fertug!  Við sem búum á höfuðborgarsvæðinu ætlum að halda áfram að hittast reglulega því það var svo gaman alltaf hjá okkur.  Etv förum við svo að fjölmenna á árshátið/ball sem Siglfirðingafélagið í Reykjavík heldur alltaf í október, gætum hist á undan og farið svo á ball ??

Bestu kveðjur frá Grétu


» 6 hafa sagt sína skoðun

25.07.2007 11:32:23 / siglo71

Sorrý, engin pistill

Jæja gott fólk

Ég átti nú von á betri viðbrögðum frá ykkur þegar ég tók að mér að klambra saman einhverju sem átti að líkjast pistli. Enn hefur engin sent mér línu þannig að ég á ekki von á að það verði um neinn pistil að ræða:(

Siggi, hvernig hafa viðbrögðin verið með myndirnar:$

Bestu kveðjur, hlakka til að sjá ykkur

 

Hrafnhildur


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Hittingur SigloCity
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1659 dögum